Erum við að leita að þér?

Flokkstjórastarf í Vinnuskóli Reykjanesbæjar er skemmtilegt starf með ungu fólki þar sem unnið er að ýmsum umhverfismálum. Reykjanesbær auglýsir nú störf flokkstjóra og yfirflokkstjóra á komandi sumri til umsóknar. Önnur störf vinnuskóla verða auglýst síðar.

Allar upplýsingar um störfin og Vinnuskóla Reykjanesbæjar veitir Berglind Ásgeirsdóttir garðyrkjufræðingur í síma 420-3200. 
Vinnuskólinn er tóbakslaus vinnustaður og allir flokkstjórar skulu vera tóbakslausir. Um launakjör fer eftir kjarasamningum viðkomandi og Sambands íslenskra sveitarfélaga.