Eysteinn Orri nýr veitingastjóri Hljómahallar

Eysteinn Orri Valsson, nýr veitingastjóri Hljómahallar.
Eysteinn Orri Valsson, nýr veitingastjóri Hljómahallar.

Reykjanesbær hefur ráðið Eystein Orra Valsson í starf veitingastjóra Hljómahallar.  Eysteinn Orri er með stúdentspróf frá ML, sveins- og meistarapróf í matvælagreinum frá MK.

Á undanförnum árum hefur Eysteinn Orri starfað sem framreiðslumeistari, veitingastjóri, rekstrarstjóri og vaktstjóri hjá Lava restaurant í Bláa Lóninu, Fiskmarkaðnum, Grillmarkaðnum og Skelfiskmarkaðnum. 

Við bjóðum Eystein Orra velkominn til starfa.