Fanney og Kristrún kvaddar eftir áratugastarf í leikskólanum Tjarnarseli

Frá kveðjuhófi.
Frá kveðjuhófi.

Fanney Sigurðardóttir,  og Kristrún Samúelsdóttir voru kvaddar af samstarfsfólki, bæjarstjóra og fulltrúa fræðsluskrifstofunnar 12. september sl. Fanney starfaði í Tjarnarseli sem matráður í 34 ár og Kristrún sem leikskólaleiðbeinandi í 27 ár.

Bæjarstjóri flutti þeim þakkir fyrir farsælt samstarf og vel unnin störf í þágu leikskólabarna í Tjarnaseli. Að lokum var  boðið upp á veisluhlaðborð að hætti hússins.