- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
„Fólkið okkar“ er liður á samfélagsmiðlum Reykjanesbæjar, þar sem markmiðið er að varpa ljósi á öll þau fjölbreyttu störf sem unnin eru hjá bænum og allt það góða fólk sem þar starfar. Að þessu sinni kynnum við Önnu Guðrúnu Heimisdóttur, sem sinnir barna og ungmennastarfi í Stapasafni.
Anna Guðrún er 33 ára og fædd og uppalin í Reykjanesbæ. Hún er gift Arnari Stefánssyni og saman eiga þau tvö börn, Ölmu Rún og Adam Inga. Hún gekk í Njarðvíkurskóla og síðar í Myllubakkaskóla, stundaði nám í Fjölbrautaskóla Suðurnesja og lauk framhaldsskólaprófi í Háskólabrú Keilis. Hún var langt komin í tölvunarfræði í Háskólanum í Reykjavík þegar hún áttaði sig á því að hana langaði frekar að vinna með fólki. Hún sneri sér því að félagsráðgjöf og útskrifaðist með BS-gráðu árið 2025.
Anna hefur mikinn áhuga á fólki og samfélagsmálum og hefur meðal annars tekið þátt í sjálfboðaliðastarfi hjá Frú Ragnheiði á Suðurnesjum í nokkur ár. Í frítímanum nýtur hún þess að lesa, föndra, baka eitthvað gómsætt og spila, auk þess að fara í góða göngutúra með tónlist eða hljóðbók í eyrunum. Hún hefur alltaf verið mikill bókaormur og átti ófáar stundir sem barn á Bókasafni Reykjanesbæjar þegar það var á Hafnargötunni, þar sem hún las bækur eftir Enid Blyton aftur og aftur eða spilaði Línu Langsokk tölvuleik í lánþegatölvunni.

Anna hóf störf í hlutastarfi í Stapasafni í byrjun árs 2025 á meðan hún var í námi. Um sumarið bauðst henni síðan að taka við barna og ungmennastarfinu á söfnum bæjarins. Í starfinu tekur hún á móti skólahópum, heldur sögustundir og kynnir safnið fyrir börnum og ungmennum. Hún sér einnig um ýmsa viðburði, undirbýr sumarlestur og tekur þátt í vali á bókum fyrir þessa aldurshópa. Auk þess stendur hún vaktina í afgreiðslunni, sem henni finnst alltaf skemmtilegt.
„Lestur hefur alltaf verið mér mikilvægur og sem móðir legg ég mikla áherslu á hann heima,“ segir Anna. „Ég trúi því að allir geti fundið bók við hæfi og að bókasafnið geti verið mikilvægur griðastaður fyrir fólk.“
Hún segir starfið fjölbreytt og skapandi, þar sem hún fái oft tækifæri til að prófa nýjar hugmyndir og stíga út fyrir þægindarammann. „Það er sérstaklega skemmtilegt að geta boðið upp á afþreyingu fyrir fjölskyldur og skapað stað þar sem fólki líður vel.“
Uppáhalds augnablikin hennar eru þegar hún les fyrir leikskólahópa og börnin koma síðar aftur á safnið með foreldrum sínum til að fá sömu bók lánaða því þau vilja heyra söguna aftur. „Og svo hef ég lúmskt gaman af því þegar ég heyri börn pikka í foreldra sína og segja: Þarna er Anna bókakona.“
Við þökkum Önnu kærlega fyrir að opna dyrnar að sínu starfi og fyrir að kveikja lestraráhuga og gleði hjá yngstu íbúunum okkar. Við hlökkum við mikið til að halda áfram að segja frá Fólkinu okkar.