- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
„Fólkið okkar“ er liður á samfélagsmiðlum Reykjanesbæjar, þar sem markmiðið er að varpa ljósi á öll þau fjölbreyttu störf sem unnin eru hjá bænum og allt það góða fólk sem þar starfar. Að þessu sinni kynnum við Ástu J. Grétarsdóttur, sem starfar í leikskólanum Asparlaut.
Ásta er gift Bjarna G. Bjarnasyni og saman eiga þau fjögur uppkomin börn og tíu barna og barnabarnabörn. Fjölskyldan skipar stóran sess í lífi hennar og tengingin við yngstu kynslóðina er augljós, bæði heima fyrir og í starfi.
Ásta hóf störf í Garðaseli árið 2010. Í mars 2025 fluttist starfsemin í nýtt húsnæði þegar leikskólinn Asparlaut tók til starfa við Skólaveg 54, og þar starfar hún í dag.
„Starfið mitt er mjög fjölbreytt og skemmtilegt, en jafnframt gefandi og krefjandi. Enginn dagur er eins, því börn eru eins misjöfn og þau eru mörg,“ segir Ásta. „Það skiptir líka miklu máli að vinna með góðu fólki og hafa góða stjórnendur.“
Í leikskólanum er unnið með kennsluefnið Lubbi finnur málbein, þar sem hundurinn Lubbi ferðast um landið í íslenskri lopapeysu og lendir í ýmsum ævintýrum. „Það voru keyptir nokkrir Lubbabangsa í leikskólann og ég ákvað að prjóna á þá peysur sem líkjast peysunni í bókinni. Það var sérstaklega skemmtilegt verkefni – og yndislegt að sjá gleðina hjá börnunum.“
Ásta segir einnig að barnabörn hennar hafi verið á ýmsum leikskólum bæjarins í gegnum tíðina og nú er næstyngsti langömmustrákurinn hennar í Asparlaut. „Ég held að það sé fáheyrt að eiga langömmubarn sem er í sama leikskóla og maður starfar í.“
Við þökkum Ástu kærlega fyrir að opna dyrnar að sínu starfi og hlökkum við mikið til að halda áfram að segja frá Fólkinu okkar.