- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
„Fólkið okkar“ er liður á samfélagsmiðlum Reykjanesbæjar, þar sem markmiðið er að varpa ljósi á öll þau fjölbreyttu störf sem unnin eru hjá bænum og allt það góða fólk sem þar starfar. Að þessu sinni kynnum við Þórunni Friðriksdóttur, sem starfar bæði sem forstöðukona Vinnuskóla Reykjanesbæjar og í félagsmiðstöðvum bæjarins.
Þórunn er 23 ára og fædd og uppalin í Njarðvík. Hún gekk í Njarðvíkurskóla og síðar í Kvennaskólann og hóf nám í uppeldis- og menntunarfræði haustið 2023. Hún útskrifast núna í vor. Þórunn æfði körfubolta á sínum grunnskólaárum og fylgist enn vel með körfunni. Í frítímanum nýtur hún þess að hreyfa sig, hitta vini og fjölskyldu, lesa og ferðast.
Þórunn starfar bæði í félagsmiðstöðvum Reykjanesbæjar og hjá Vinnuskólanum. Hún hóf störf í félagsmiðstöðvunum haustið 2024 og vinnur nú í FjörAkur og FjörStapa. Þar felst starfið meðal annars í að kynnast ungmennunum, eiga góð samtöl við þau og skapa skemmtilega stemningu á opnum húsum.
Hún hefur jafnframt starfað hjá Vinnuskólanum frá sumrinu 2021 og sinnt þar fjölbreyttum verkefnum í gegnum tíðina. Í byrjun þessa árs tók hún við starfi forstöðukonu Vinnuskólans, þar sem hún sér meðal annars um undirbúning fyrir sumarið, atvinnutengt nám og annað sem tengist starfsemi skólans.
„Ég hef mikinn áhuga á að vinna með ungmennum og fá að taka þátt í þroska þeirra og daglegu lífi,“ segir Þórunn. „Það er mjög gefandi að geta haft jákvæð áhrif á þau og skapa umhverfi þar sem þeim líður vel. Enginn dagur er eins og maður er alltaf spenntur að mæta í vinnuna. Mér finnst líka mjög skemmtilegt að þróa verkefni Vinnuskólans og leggja mitt af mörkum til að hann sé góður vettvangur fyrir ungmenni Reykjanesbæjar yfir sumartímann.“
Við þökkum Þórunni kærlega fyrir að opna dyrnar að sínu starfi og hlökkum við mikið til að halda áfram að segja frá Fólkinu okkar.