Forvarnardagur ungra ökumanna

Ungir ökumenn á forvarnardegi
Ungir ökumenn á forvarnardegi

Árlegur forvarnardagur ungra ökumanna var haldinn í 88 Húsinu síðasta miðvikudag og tóku um 140 nemendur á fyrsta ári í Fjölbrautaskóla Suðurnesja þátt.
Markmiðið með verkefninu er að vekja ungmennin til umhugsunar um þá ábyrgð sem fylgir því að fá bílpróf, fækka umferðaslysum og auka öryggi í umferðinni.

Nemendur fengu fræðslu um afleiðingar umferðarlagabrota, sektir, tjónaskyldu og brot gegn 3ja aðila, þau fengu að prufa ölvunargleraugu auk þess sem fíkniefnahundar leitaðu af fíkniefnum sem búið var að fela á nokkrum stöðum.
Sviðsett var umferðarslys á planinu við 88 Húsið og fengu nemendur að sjá hvernig lögregla og sjúkraflutningamenn athafna sig þegar slys verður og klippa þarf bíl í sundur. Eins og undanfarin ár voru grillaðar pylsur í hádeginum handa öllum þátttakendum .

Forvarnardagur ungra ökumanna er samstarfsverkefni Reykjanesbæjar, Lögreglunnar á Suðurnesjum, Brunavarna Suðurnesja, Fjölbrautaskóla Suðurnesja og Tryggingamiðstöðvarinnar.

Mynd frá forvarnardegi       Hluti þátttakenda í forvarnardegi