Fræðslufundur um sögu bæjarins á sýningum

Ein gömul og góð ljósmynd úr bæjarlífinu.
Ein gömul og góð ljósmynd úr bæjarlífinu.

Fræðslufundur verður haldinn í Bíósal Duushúsa, miðvikudaginn 1. október kl 17.30. Rætt verður um áhugaverðar sýningar um söguna í húsunum og mikilvægi þess að þekkja og varðveita sögu svæðisins. Sérstaklega munum við skoða varðveislu sögunnar eftir 1950 og kynna hugmyndir um þátttöku íbúa í söfnun heimilda fyrir þá sögu. Við hvetjum alla þá sem láta sig þetta mál varða að mæta, ókeypis aðgangur.

Starfsfólk Byggðasafns Reykjanesbæjar