Framkvæmdir við Sundmiðstöðina

Tölvuteiknuð mynd af nýjum rennibrautum
Tölvuteiknuð mynd af nýjum rennibrautum

Framkvæmdir við útisvæði Sundmiðstöðvar eru að fara af stað. Verkinu verður skipt í þrjá áfanga. Í fyrsta áfanga verður rennibraut og steypt áhorfendasvæði rifin. Byggðir verða tveir nýir heitir pottar og einn kaldur pottur. Í áfanga tvö verður gufubað og útiklefi rifið. Byggðir tveir útiklefar, ný sauna og ný blautgufa. Í áfanga þrjú er svo komið að því að setja upp nýjar rennibrautir. Reykjanesbær hefur samið við Framkvæmdafélagið Arnarhvol um framkvæmdina.  

Rennibrautirnar koma frá Polin í Tyrklandi en framleiðandi rennibrautar hefur umsjón með uppsetningu á rennibrautinni. Verktími er áætlaður fjórir mánuðir og stefnt er að því að sundlaugargestir geti byrjað að nota nýja aðstöðu föstudaginn 30. október n.k.   

Ekki stendur til að loka sundlauginni meðan á framkvæmdum stendur og eru gestir beðnir velvirðingar á því ónæði sem framkvæmdin getur valdið. Rennibrautin sem þjónað hefur sundlaugargestum í áraraðir verður tekin úr notkun mánudaginn 6. júlí. Því er ekki úr vegi að mæta í sund helgina 4. – 5. júlí og fara síðustu ferðirnar.