Fresta þurfti síðari umræðu um fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar

Forsíða fjárhagsáætlunar Reykjanesbæjar 2017-2022.
Forsíða fjárhagsáætlunar Reykjanesbæjar 2017-2022.

Fresta þurfti síðari umræðu fjárhagsáætlunar Reykjanesbæjar 2017 -2022 á bæjarstjórnarfundi í gær þar sem ekki náðust samningar við alla kröfuhafa vegna fjárhagslegra endurskipulagningar Reykjanesbæjar, eins og vonir stóðu til. Síðari umræða um fjárhagsáætlun fer fram á síðasta bæjarstjórnarfundi ársins 2016, þann 20. desember.