FS fær titlana UNESCO-skóli og Fyrirmyndarstofnun

Það eru sannkölluð tímamót hjá Fjölbrautaskóla Suðurnesja í Reykjanesbæ en skólinn hefur nú formlega hlotið viðurkenningu sem UNESCO-skóli eftir ítarlegt umsóknarferli. Samhliða þeirri viðurkenningu hefur skólinn einnig verið útnefndur Fyrirmyndarstofnun 2025 og skipar sér þar með enn á ný í fremstu röð opinberra stofnana á Íslandi.

Hluti af alþjóðlegu UNESCO-neti

UNESCO hefur starfrækt alþjóðlegt samstarfsnet skóla frá árinu 1953 undir heitinu UNESCO Associated Schools Project Network, ASPnet. Í dag eru um 10.000 skólar í 180 löndum hluti af netinu, á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi.

Með inngöngu í netið verður Fjölbrautaskóli Suðurnesja hluti af öflugu alþjóðlegu samstarfi sem styður við fjölbreyttari kennsluhætti og eykur þekkingu nemenda á málefnum Sameinuðu þjóðanna og heimsmarkmiðum þeirra. Verkefnið var unnið í samvinnu við Suðurnesjavettvang og Reykjanes Jarðvang sem hafa unnið markvisst að því að styðja leik-, grunn- og framhaldsskóla á Suðurnesjum í átt að UNESCO-viðurkenningu.

Í tilefni þessara tímamóta heimsótti Sigrún Svafa Ólafsdóttir, verkefnastjóri fræðslumála hjá Reykjanes Jarðvangi og GeoCamp Iceland, skólann og afhenti bækur og fræðsluefni frá Reykjanes GeoPark sem nýtt verður í starfi skólans. Kennararnir Guðbjörg Rúna Vilhjálmsdóttir og Davíð Ásgeirsson hafa haldið utan um verkefnið fyrir hönd skólans og tóku við gjöfunum ásamt Kristjáni Ásmundssyni skólameistara og Guðlaugu Pálsdóttur aðstoðarskólameistara.

Fyrirmyndarstofnun 2025 í tíunda sinn á tólf árum

Á sama tíma hefur Fjölbrautaskóli Suðurnesja enn á ný hlotið viðurkenningu fyrir framúrskarandi starfsumhverfi. Á hátíð Sameykis 12. febrúar var tilkynnt um val á Stofnun ársins 2025. Þar lenti skólinn í 2. sæti í flokki stórra ríkisstofnana, það er stofnana með 90 starfsmenn eða fleiri.

Fimm efstu stofnanir í hverjum stærðarflokki hljóta titilinn Fyrirmyndarstofnun og fær skólinn þann titil nú í tíunda sinn á síðustu tólf árum. Í síðustu þremur könnunum hafði skólinn raðað sér í efsta sæti í sínum flokki.

Viðurkenningin byggir á könnun Sameykis meðal starfsmanna í opinberri þjónustu hjá ríki, Reykjavíkurborg, sveitarfélögum og sjálfseignarstofnunum og endurspeglar sterka liðsheild, gott starfsumhverfi og metnað í þjónustu og fagmennsku.

Kristján Ásmundsson skólameistari og Guðlaug Pálsdóttir aðstoðarskólameistari tóku við viðurkenningunni fyrir hönd skólans.

Reykjanesbær óskar Fjölbrautaskóla Suðurnesja innilega til hamingju með þessa glæsilegu áfanga. Viðurkenningarnar eru skýr staðfesting á metnaðarfullu starfi, öflugri heild og mikilvægu framlagi skólans til menntunar og samfélagsins á Suðurnesjum.