Fulltrúar í sendinefnd frá Xianyang hrífast af nýtingu jarðvarma á Reykjanesi

Hópurinn sem heimsótti Reykjanesbæ í gær, ásamt Kjartan Má Kjartanssyni bæjarstjóra, Sigurgesti Guð…
Hópurinn sem heimsótti Reykjanesbæ í gær, ásamt Kjartan Má Kjartanssyni bæjarstjóra, Sigurgesti Guðlaugssyni verkefnisstjóra viðskiptaþróunar og Ásbirni Jónssyni sviðsstjóra stjórnsýslusviðs.

Sendinefnd frá vinabæ Reykjanesbæjar, Xianyang í Kína, kom í heimsókn í ráðhúsið í gær.  Hópurinn er hér á landi til að fræðast um virkjun jarðvarma til upphitunar húsa og rafmagnsframleiðslu. Þau voru sérstaklega uppnumin af því hvernig Reyknesingar leitast við að fullnýta þau tækifæri sem skapast í kringum jarðhitavirkjanir. Má þar nefna Bláa Lónið og Stolt Seafarm á Reykjanesi.

Frétt um heimsókn sendiherra Kína á Íslandi til Reykjanesbæjar má nálgast hér

Frétt um heimsókn frá vinaborginni Xianyang í Kína má nálgast hér