Fundir bæjarstjórnar úr Ráðhúsi í Hljómahöll

Bæjarstjórn mun yfirgefa risið í Ráðhúsinu þann 20. ágúst nk. og færa sig yfir í Merkines, Hljómahö…
Bæjarstjórn mun yfirgefa risið í Ráðhúsinu þann 20. ágúst nk. og færa sig yfir í Merkines, Hljómahöll með fundi sína.

Fundir bæjarstjórnar munu flytjast úr Ráðhúsi í Hljómahöll þann 20. ágúst nk. Fundirnir munu fara fram í Merkinesi og gengið er beint inn í salinn frá Hjallavegi. Aðgengi verður því mun betra en verið hefur, þar sem fundir bæjarstjórnar hafa verið í risi Ráðhússins.

Eftir sem áður verður öllum fundum bæjarstjórnar streymt í gegnum efnisveituna YouTube. 

Fara á streymi bæjastjórnarfunda