Gæðakennsla og góður skólabragur í Myllubakkaskóla

Úr Myllubakkaskóla.
Úr Myllubakkaskóla.

Nýverið var skólastarf í Myllubakkaskóla tekið út af Námsmatsstofnun fyrir menntamálaráðuneytið. Markmið úttekta er að tryggja að starfssemi sé í samræði við laga og aðalnámsskrár, auka gæði náms og stuðla að umbótum í skólastarfi.

Úttektum af þessu tagi er ætlað að tryggja að réttindi nemenda séu virt og þeir fái þá þjónustu sem þeir eiga rétt á.  Úttektinni er einnig ætlað að koma upplýsingum um skólastarfið til allra aðila skólasamfélagsins.

Það sem tekið var til skoðunar var fagleg forusta, stefnumótun og skipulag, samskipti nemenda og skóla, nám og námsaðstæður, þátttaka og ábyrgð nemenda, námsaðlögun framkvæmd innra mats og umbótastarf í kjölfar innra mats.

Að sögn Gylfa Jóns Gylfasonar fræðslustjóra í Reykjanesbæ kom skólinn afbragðsvel út úr úttektinni. Samtals voru skoðaðir 23 undirþættir og 22 af þáttunum sem skoðaðir voru metnir annað hvort sem gott eða mjög gott verklag í skólastarfi. Einungis einn þáttur var metinn þannig að úttektaraðilar töldu að einhverja þætti innan hans þyrfti að skoða sérstaklega með tilliti til úrbóta. Gylfi Jón sagði að til að ná svona árangri þyrfti margt að koma til, góð stjórnun, skýr stefnumótun, sterkur kennarahópur sem væri í góðu samstarfi við foreldrasamfélagið sem kynni að laða fram það besta í nemendum og góður skólabragur.