Gangbraut fjölbreytileikans

Gangbraut fjölbreytileikans, sjálf regnbogabrautin, fékk andlitslyftingu í góða veðrinu í dag. Regnbogabrautin sem liggur fyrir framan ráðhús Reykjanesbæjar er máluð út frá fána fjölbreytileikans sem er nýttur í mannréttindabaráttum víðsvegar um heim.

Fulltrúar úr Reykjanesbæ tóku þátt í að mála gangbrautina og endurspeglaði hópurinn fjölbreytileika mannlífsins.

Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri tók þátt ásamt Halldóru Fríðu Þorvaldsdóttur forseta bæjarstjórnar, Ragnari Birki Bjarkarsyni og Guðrúnu Maríu Þorgeirsdóttur frá Hinsegin Plútó. Eins voru hjónin Sliman Hidefi sérfræðingur frá alþjóðateymi Reykjanesbæjar og eiginkona hans Luni Hidefi, Borgar L. Jónsson frá öldungaráði, Hreggviður Hermannsson frá vinnuskólanum, Unnur H. Ævarsdóttir frá notendaráði fatlaðs fólks og vinirnir Ólafur Björn Jónsson (8 ára) og Garðar Flóki Matthíasson (6 ára).

Verkefnið var leitt af Ingva Hrafni Laxdal listamanni og konu hans Kristínu Helgu Magnúsardóttur. Reykjanesbær vinnur undir formerkjum slagorðsins „í krafti fjölbreytileikans” og fagnar þeirri mannréttindabaráttu sem regnbogafáninn stendur fyrir.