Garðeigendur í Reykjanesbæ

Trjágróður við lóðamörk
Trjágróður við lóðamörk

Mikið er um fallega garða í Reykjanesbæ og garðeigendur þurfa að huga að mörgu þegar kemur að umhirðu þeirra. Í byggingarreglugerð nr.112/2012 er sú skylda lögð á garðeigendur að halda gróðri innan lóðarmarka og hvetur Reykjanesbær garðeigendur til að klippa tré sín og runna svo þau hindri ekki för vegfarenda, skyggi á umferðarskilti eða dragi úr götulýsingu.

En hvað þarf að passa?

  • Gangandi og hjólandi vegfarendur eiga að hafa greiða leið um göngustíga. 
  • Gróður má ekki skyggja á umferðarmerki. 
  • Gróður má ekki byrgja götulýsingu.
  • Gróður sem vex yfir göngustíg má ekki vera lægri en 2,8 metrar svo hjólreiðafólk og snjóruðningstæki komist leiðar sinnar.
  • Gróður sem vex yfir akstursbraut má ekki vera lægri en 4,2 metrar svo sorphirðu- og snjóruðningstæki komist leiðar sinnar. 

Þeir sem vilja fá nánari upplýsingar eða koma ábendingu á framfæri geta haft samband við Umhverfismiðstöð í síma 420 3200 eða sent ábendingu í gegnum ábendingargátt.