Gjaldþrot Capacent hefur ekki áhrif á starfssemi Reykjanesbæjar

Reykjanesbær
Reykjanesbær

Rétt er að árétta að gjaldþrot ráðgjafafyrirtækisins Capacent mun ekki með neinum hætti hafa áhrif á starfsemi Reykjanesbæjar.

Ráðningar í störf hjá sveitarfélaginu eru alfarið unnar af starfsmönnum bæjarins og hefur verið um nokkurt skeið. Kaup á annarri ráðgjafarþjónustu en ráðningarþjónustu af Capacent hefur verið hverfandi lítil undanfarin ár en fyrirtækið tók að litlum hluta þátt í gerð „Sóknarinnar“ á árinu 2014 fyrir endurskipulagningu fjárhags Reykjanesbæjar.