Glæsilegur árangur í nýsköpun

Nemendurnir Hjördís Lilja Egilsdóttir og Stefania Szymanowska í 5. bekk Njarðvíkurskóla náðu glæsilegum árangri þegar þær komust alla leið í úrslit Nýsköpunarkeppni grunnskólanna 2026 með hugmynd sína, „Bókin ykkar“.

Hugmyndin byggir á því að skapa aðgengilega og skemmtilega bók fyrir blinda þar sem saman fara áþreifanlegt efni, hljóðupplifun og blindraletur. Markmiðið er að gera lestur og bókaupplifun ríkari og aðgengilegri fyrir alla.

Lokahóf keppninnar fór fram laugardaginn 30. maí á Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Þar komu saman efnilegustu nýsköpunarnemendur landsins til að kynna hugmyndir sínar og fagna árangri sínum eftir viðburðaríkt keppnisár.

Samkeppnin var hörð en alls bárust yfir 500 hugmyndir frá nemendum í 5. til 7. bekk víðs vegar að af landinu. Aðeins 25 hugmyndir voru valdar til úrslita og því er árangur þeirra Hjördísar Lilju og Stefaníu sérstaklega eftirtektarverður.

Í aðdraganda lokahófsins tóku úrslitanemendur þátt í skapandi vinnustofum þar sem þau fengu tækifæri til að þróa hugmyndir sínar áfram, vinna með sérfræðingum og undirbúa kynningar á verkefnum sínum.

Á lokahófinu hlaut verkefnið „Bókin ykkar“ jafnframt Mannréttindabikar Nýsköpunarkeppni grunnskólanna og Öryrkjabandalags Íslands. Verðlaunin voru afhent af Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands.

Reykjanesbær óskar þeim Hjördísi Lilju, Stefaníu og Njarðvíkurskóla innilega til hamingju með þennan glæsilega árangur.