Guðný Kristjánsdóttir hlaut Súluna

Guðný Kristjándóttir Súluhafi.
Guðný Kristjándóttir Súluhafi.

Afhending Súlunnar, menningarverðlauna Reykjanesbæjar fyrir árið 2014, fór fram við hátíðlega athöfn í Bíósal Duushúsa fimmtudaginn 13. nóv. kl. 18.00.  Verðlaunin eru veitt þeim sem hafa unnið vel að menningu og listum og var þetta í átjánda sinn sem Súlan var afhent.  Að þessu sinni hlaut verðlaunin Guðný Kristjánsdóttir fyrir framlag sitt til menningar og lista. Verðlaunagripurinn er  hannaður og smíðaður af keflvísku listakonunni Elísabetu Ásberg.  Handhafa fyrri ára má sjá á vef Reykjanesbæjar. Formaður menningarráðs Eva Björk Sveinsdóttir afhenti verðlaunin fyrir hönd bæjarstjórnar.

Við sama tækifæri var styrktar-, stuðningsaðilum og þátttakendum Ljósanætur, menningar- og fjölskylduhátíðar Reykjanesbæjar, þakkaður stuðningurinn en þeir voru 87 talsins í ár.

Guðný byrjaði 14 ára

Guðný Kristjánsdóttir er fædd í Keflavík þann 7. mars 1967. Hún steig fyrst á svið með Leikfélagi Keflavíkur 14 ára gömul árið 1981 í hlutverki hérakrílis í Rauðhettu og úlfinum. Um tvítugt kom Guðný af fullri alvöru inn í starf leikfélagsins með þátttöku í verkinu Skemmtiferð á vígvöllinn í leikstjórn Huldu Ólafsdóttur, sem Guðný segir eiga stóran þátt í því að hún hóf að leika. Um þetta leyti voru hjól Leikfélagsins farin að snúast á nýjan leik eftir að hafa legið í dvala um nokkurt skeið. Síðan hefur ekkert stöðvað framgang leikfélagsins og hefur Guðný staðið þar í stafni.

Á ferli sínum hefur Guðný tekið þátt í uppsetningu á 31 leikverki  hjá leikfélaginu, auk þess  að taka þátt í fjölmörgum leikverkefnum við hin ýmsu tilefni svo sem þrettándagleði, Ljósanótt, 17. júní o.fl. Þá hefur hún Leikstýrt tveimur verkum fyrir leikfélagið ásamt öðrum.

Vorið 1989 kom Guðný inn í stjórn leikfélagsins og árið 1993 var hún gerð að formanni. Allar götur síðan, utan eitt ár, hefur Guðný setið í stjórn félagsins.

Hefur verið óstöðvandi síðan

Guðný hefur verið ötull málsvari leikfélagsins á öllum vígstöðvum og á sínum tíma fór hún fyrir hópi leikara sem unnu af miklu kappi að því að fá varanlegt húsnæði fyrir félagið. Það var svo í janúar 1997 sem Guðný, þá sem formaður LK, skrifaði undir rekstrar- og breytingasamning á Vesturbraut 17, ásamt Kjartani Má Kjartanssyni, núverandi bæjarstjóra, sem þá var formaður menningarnefndar Reykjanesbæjar. Kraftmikill hópur vann að breytingunum sem tóku 9 mánuði.  Á þessum 25 árum sem liðin eru frá því að Guðný gekk í raðir leikfélagsins hefur hún verið vakin og sofin yfir leikhúsinu haft með því umsjón og þannig verið nokkurs konar leikhússtjóri.

Skilar nú til baka til samfélagsins

Nú er svo komið að það mikla og fórnfúsa starf sem Guðný hefur unnið í þágu Leikfélags Keflavíkur og sú reynsla sem hún hefur aflað sér þar er að skila sér til baka til hennar sjálfrar og samfélagsins. Árið 2008 stofnaði Guðný fyrirtækið Gargandi snilld sem heldur úti leiklistar- og söngnámskeiðum fyrir krakka frá 7 ára aldri, í nánu samstarfi við Leikfélagið.

Til viðbótar því sinnir Guðný nú leiklistarkennslu í Heiðarskóla, þar sem leiklist er kennd frá 1. og upp í 10. bekk. Það er í eðli skólastarfs að það litast af þeim mannauði sem hver skóli geymir. Það eru því mikil verðmæti fólgin í því að skóli geti skapað þannig aðstöðu fyrir unga fólkið að það fái tækifæri til að rækta eins mikið af hæfileikum sínum og völ er á, svo það megi blómstra og skila okkur fjölbreytni, bættu mannlífi, skapandi hugsun og nýjum lausnum. Þannig geta hinir ólíku þættir menningarinnar, svo sem skóli, listir og atvinnulíf,  spilað saman og stutt hver við aðra með heillavænlegri útkomu fyrir alla.