Hæfingarstöðinni barst góð gjöf

Frá afhendingu gjafarinnar á Hæfingarstöðinni.
Frá afhendingu gjafarinnar á Hæfingarstöðinni.

Í febrúar s.l stóðu Lionessur í Keflavík fyrir happadrætti sem haldið var á þeirra árlegu Góugleði. Samtals söfnuðust 300.000 krónur sem þær gáfu til Hæfingarstöðvarinnar. Lionessur komu færandi hendi á mánudaginn og afhentu peningagjöfina, en þessi gjöf mun koma að mjög góðum notum við uppbyggingu á starfinu.