Vertu með í heilsu- og forvarnarviku

Vikuna 25. september - 1. október næstkomandi verður haldin Heilsu- og forvarnarvika í Reykjanesbæ. Markmiðið með þeirri viku er að hlúa að verndandi heilsufarsþáttum með þátttöku allra bæjarbúa og draga úr þeim áhættuþáttum sem einstaklingar geta staðið frammi fyrir á lífsleiðinni. 

Vonumst við til að sem flestir taki virkan þátt í verkefninu með því að bjóða íbúum upp á heilsutengda viðburði, þjónustu eða varning þessa vikuna. Markmiðið er að heilsu-og forvarnarvikan sé fjölbreytt og höfði til sem flestra. Stofnanir Reykjanesbæjar taka þátt í verkefninu og er það von okkar að sem flest fyrirtæki, stofnanir, félagasamtök og íþrótta-og tómstundafélög sjái hag sinn í þátttöku verkefnisins.

Skila þarf upplýsingum/dagskrá og mynd fyrir 18. september nk. til að vera með í viðburðardagatalinu. Til að skila inn efni er hægt að senda tölvupóst á forvarnir@reykjanesbaer.is

Dagskráin verður birt á visitreykjanesbaer.is og auglýst á samfélagsmiðlum sveitarfélagsins.

Hafþór Birgisson
íþrótta- og tómstundafulltrúi