Heilsu- og forvarnarvika haldin í áttunda sinn

Vikuna 28. september - 4. október næstkomandi verður heilsu- og forvarnarvika í Reykjanesbæ. Þetta er í áttunda skiptið sem heilsu- og forvarnarvikan er haldin undir kjörorðinu Samvinna-Þátttaka-Árangur. Vonast er til að fyrirtæki og stofnanir í bænum taki virkan þátt í verkefninu með því að bjóða bæjarbúum upp á heilsutengda viðburði. Skila þarf inn upplýsingum fyrir 21. september nk.

Markmiðið með heilsu- og forvarnarvikunni er að draga úr þeim áhættuþáttum sem einstaklingar geta staðið frammi fyrir á lífsleiðinni og hlúa að verndandi þáttum með þátttöku allra bæjarbúa. Að sögn Hafþórs Barða Birgissonar íþrótta- og tómstundafulltrúa Reykjanesbæjar er vonast til að fyrirtæki og stofnanir taki virkan þátt í verkefninu með fjölbreyttum viðburðum og tilboðum sem höfði til sem flestra. „Allar stofnanir Reykjanesbæjar taka þátt í verkefninu og er það von okkar að sem flest fyrirtæki, stofnanir, félagasamtök og íþrótta-og tómstundafélög í Reykjanesbæ sjái hag sinn í þátttöku verkefnisins.“  

Ætlunin er að útbúa viðburðadagatal yfir þau tilboð og verkefni sem verða í gangi í heilsu- og forvarnarvikunni og verða ýmsar leiðir nýttar við að auglýsa verkefnið sjálft. Frekari upplýsingar eru veittar í síma 898-1394 eða á netfangið heilsuvika@reykjanesbaer.is.

Skila þarf upplýsingum/dagskrá fyrir 21. september nk. til að vera með í viðburðardagatalinu.