Heilsu- og forvarnarvika

Ánægðir Skólahreystissigurvegarar
Ánægðir Skólahreystissigurvegarar

 Vikuna 1. - 7. október næstkomandi verður haldin Heilsu- og forvarnarvika í Reykjanesbæ.  Þetta er í fimmta skiptið sem  heilsu og forvarnarvikan er haldin undir kjörorðinu Samvinna-Þátttaka-Árangur. Markmiðið með heilsu-og forvarnarvikunni er að draga úr þeim áhættuþáttum sem einstaklingurinn getur staðið  frammi fyrir á lífsleiðinni og hlúa að verndandi þáttum með þátttöku allra bæjarbúa og því er leitað til ykkar. 

Vonumst við til að fyrirtæki og stofnanir í bænum taki virkan þátt í verkefninu með því að bjóða bæjarbúum upp á eitthvað heilsutengt þessa vikuna, Markmiðið er að heilsu-og forvarnarvikan sé fjölbreytt og höfði til sem flestra. 
Allar stofnanir Reykjanesbæjar taka þátt í verkefninu og er það von okkar að sem flest fyrirtæki, stofnanir, félagasamtök og íþrótta-og tómstundafélög í Reykjanesbæ sjái hag sinn í þátttöku verkefnisins.
Ætlunin er að útbúa viðburðadagatal yfir þau tilboð og verkefni sem verða  í gangi í heilsu-og forvarnarvikunni og verða ýmsar leiðir nýttar við að auglýsa verkefnið sjálft.  
Áhugasamir vinsamlega hafi samband við starfsþróunarstjóra Reykjanesbæjar sem hefur yfirumsjón með verkefninu í síma 421-6700 eða gudrun.thorsteinsdottir@reykjanesbaer.is  eða á netfangið heilsuvika@reykjanesbaer.is


Virðingarfyllst
Guðrún Þorsteinsdóttir
Starfsþróunarstjóri Reykjanesbæjar,
Sigríður Daníelsdóttir forstöðumaður ráðgjafadeildar og
Hafþór B. Birgisson tómstunda-og félagsmálafræðingur.