Taktu þátt í heilsu- og forvarnarviku

Framundan er Heilsu- og forvarnarvika í Reykjanesbæ vikuna 25. september til 1. október þar sem fjöldi heilsutengdra viðburða verða í boði fyrir bæjarbúa á öllum aldri. Markmiðið með Heilsu- og forvarnarvikunni er að draga úr þeim áhættuþáttum sem einstaklingurinn getur staðið frammi fyrir á lífsleiðinni ásamt því að hlúa að verndandi lifnaðarháttum með þátttöku allra bæjarbúa.

Fjölbreytt dagskrá verður alla vikuna og ýmis tilboð í gangi hjá fyrirtækjum og stofnunum Reykjanesbæjar. Meðal þess sem er á dagskrá í Heilsu- og forvarnarvikunni er fjölskylduganga á Þorbjörn miðvikudaginn 27. september kl. 17.00, ókeypis í Vatnaveröld föstudaginn 29. september, Heilsufarsskoðun á Bókasafninu, Jóga Nidra djúpslökun, vatnsleikfimi, fyrirlestur um svefn með Einari Trausta Einarssyni sálfræðingi þar sem hann fer yfir sturlaðar staðreyndir um svefn. Að auki munu stofnanir Reykjanesbæjar, fyrirtæki verða með virka þátttöku í vikunni. Íþróttafélögin munu bjóða upp á ókeypis æfingar og vinaviku. Líkamsræktarstöðvar verða með ýmis tilboð í gangi og Nesvellir verða með viðburði fyrir eldri borgara.

Við getum því öll fundið okkur hreyfingu við hæfi og nýtt okkur fjölda heilsueflandi viðburði þessa vikuna fyrir bætta heilsu. Bæjarbúar eru hvattir til þess að taka þátt í Heilsu- og forvarnarvikunni.

Sjón er sögu ríkari. Hægt er að kynna sér dagskrána í heild sinni á Visit Reykjanesbær

Hafþór B. Birgisson, íþrótta- og tómstundafulltrúi Reykjanesbæjar