Heilsuleikskólinn Háaleiti fær Erasmus+ styrk til eflingar hreyfiþroska

Frá Háaleitisskóla.
Frá Háaleitisskóla.

Heilsuleikskólinn Háaleiti hefur fengið Eramus+ styrk til að vinna samstarfsverkefni með heilsuleikskólum frá Noregi og Eistlandi. Verkefnið ber heitið „What´s your moove?“ og mun standa yfir næstu tvö árin. Háaleiti er stýriskóli verkefnisins og heldur utan um skýrslur og verkefnið í heild. Þá gerir styrkurinn skólanum kleift að ferðast til þessara landa, skoða og kynnast starfi samstarfsskólanna.

Háaleiti hefur verið að vinna markvisst að því að efla fjölbreytta hreyfingu leikskólabarna og er verkefnið enn einn liðurinn í því að skapa heilbrigðar venjur sem vonandi fylgja börnunum út í lífið.  Verkefnið er bæði spennandi og áhugavert og er starfsmannahópurinn fullur tilhlökkunar að takast á við það. Háaleiti er í raun búið að vera að vinna með YAP-ið síðastliðin tvö ár, þar sem við byrjuðum sem þátttakendur í sambærilegu verkefni Special Olympics í Rúmeníu árið 2014, en það verkefni var styrkt af ESB.

Young Athlete Program – YAP – er verkefni á vegum alþjóðasamtaka Special Olympics sem hefur að markmiði að efla hreyfiþjálfun og bæta hreyfifærni barna með sérþarfir.  Sérstök áhersla er lögð á gildi snemmtækrar íhlutunar og að bíða ekki eftir greiningu barnsins.
Nýr alþjóðlegur YAP bæklingur er í vinnslu og aðgengi að efni er á heimasíðu SOI sem ætti að geta stuðlað að því að allir áhugasamir geta kynnt sér verkefnið. Hér má nálgast nánari upplýsingar.