Hirðing jólatrjáa

Hirðing jólatrjáa
Hirðing jólatrjáa

Reykjanesbær býður upp á hirðingu jólatrjáa frá íbúum og kemur þeim til förgunar dagana 5. janúar til og með 11. janúar. Hringja þarf í síma 4203200 og óska eftir þjónustunni. Íbúar þurfa að setja jólatrén út fyrir lóðamörk með jólatrjám nágranna ef kostur er og huga vel að frágangi þannig að trén fjúki ekki eða valdi ónæði.

Íbúar geta einnig losað sig við jólatré í Kölku sem er opin frá klukkan 10:00 til 18:00 alla virka daga og frá klukkan 11:00 til 16:00 á laugardögum.