Hjálparhönd á Suðurgötu 19

Á dögunum kom vaskur hópur starfsmanna Íslandsbanka í Reykjanesbæ og rétti íbúum á Suðurgötu 19, sem er heimili fatlaðs fólks, hjálparhönd. Þau buðu fram krafta sína við garðvinnu, hreinsuðu beð og runna og slógu grasið þannig að nú er garðurinn og umhverfi hússins komið í sumarbúning.

Íbúar voru glaðir með framtakið, fylgdust með og tóku þátt eftir bestu getu. Starfsmönnum Íslandsbanka eru færðar bestu þakkir fyrir þennan góða liðstyrk.