- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Samfélagsmiðstöðin Hjarta Ásbrúar hefur verið opnuð í Andrews Theater. Verkefnið hlaut sérstakan styrk frá mennta- og barnamálaráðuneytinu til að efla farsæld barna og munu Fjörheimar og Íþróttabandalag Reykjanesbæjar annast daglegan rekstur miðstöðvarinnar.
„Hugmyndin kom frá börnunum sjálfum en árið 2024 var samráðsverkefni í Háaleitisskóla sem bar heitið Börnin að borðinu. Reykjanesbær, Kadeco og Háaleitisskóli stóðu að verkefninu. Þar kölluðu börnin sjálf eftir hjarta í hverfið, einhvern stað til að koma saman og vera stolt af. Nú er sá staður orðinn að veruleika.“ segir Thelma Hrund Hermannsdóttir, verkefnastjóri Hjarta Ásbrúar.
Hjarta Ásbrúar sameinar krafta íþróttahreyfingarinnar og félagsmiðstöðvastarfs í Reykjanesbæ og skapar nýjan vettvang fyrir börn, fjölskyldur og íbúa til að hittast, taka þátt og eflast í samfélaginu. Markmiðið er að auðvelda börnum að tengjast reglubundnu íþrótta- og tómstundastarfi til framtíðar.
Í sumar verður boðið upp á fjölbreytt og lifandi starf fyrir alla aldurshópa. Þar verður meðal annars boðið upp á foreldramorgna, íþróttanámskeið, leiklistarsmiðjur, fjölskylduopnanir og opið hús fyrir unglinga. Einnig verða leikir HM í fótbolta sýndir á risaskjá í bíósal hússins. Allt starf er gjaldfrjálst og hægt er að mæta án skráningar.
Að verkefninu standa öflugir bakhjarlar. Stuðningur frá Kadeco, Bjartavík, Isavia, Háaleitisskóla, Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum og íþróttafélögunum Keflavík og Njarðvík gerir kleift að bjóða alla dagskrá án endurgjalds og án skráningar.
„Hjarta Ásbrúar er hugsað fyrir íbúa Ásbrúar, þvert á aldur og þjóðerni. Dagskráin er fjölbreytt og ættu allir að finna eitthvað við hæfi fyrir sinn aldur. Sjáumst í Hjartanu!“ Segir Thelma Hrund.
Verkefnið sýnir árangur þess þegar raddir barna, sköpun og framsækni fá að vera leiðandi. Reykjanesbær þakkar öllum sem komu að verkefninu og lögðu sitt af mörkum til að gera það að veruleika.
Við hvetjum alla til að fylgjast með starfseminni á heimasíðunni Hjartaasbruar.com og á samfélagsmiðlum undir @Hjartaasbruar.
