Hjólastígur frá Reykjanesbæ að Flugstöð á áætlun

Vinna við gerð hjólastígs frá Eyjavöllum í Reykjanesbæ að Flugstöð Leifs Eiríkssonar er á áætlun, að sögn Guðlaugs H. Sigurjónssonar sviðsstjóra umhverfissviðs. Stefnt er að verklokum í október.

Sá hluti hjólastígsins sem nú er í vinnslu er frá Reykjanesbraut að Flugstöð. Gangbraut mun koma yfir Reykjanesbraut og stígurinn halda áfram meðfram Rósaselsvötnum og inn á Vesturgötu við Eyjavelli. Gamlir stígar við vötnin verða nýttir við gerð hjólastígsins, að sögn Guðlaugs.   

„Með því að tengja Reykjanesbæ við Flugstöð með göngu- og hjólastígum er ekki einungis verið að auka þjónustu og öryggi þeirra fjölmörgu íbúa  sem starfar í eða við Flugstöðina heldur stórbæta öryggi þeirra ferðamanna sem sem kjósa að hjóla um landið. Hugmynd okkar er síðan að halda áfram og tengja Reykjanesbæ og Voga saman yfir gömlu þjóðleiðina við Stapa. Þar með er stóri hluti Reykjanesbrautar farinn út sem hjólaleið fyrir ferðamenn því hægt er að fara áfram úr Vogum í gegnum Vatnsleysu að Straumsvík sem er bæði fallegri hjólaleið og öruggari.“

Þá er gert ráð fyrir að merkja leið niður Vesturgötu inn á Strandleiðina sem nær að innra Dalshverfi. 

Rauða línan á mynd sýnir staðsetningu hjólastígsins frá Eyjavöllum ofan Vesturgötu, yfir Reykjanesbraut og að Flugstöð: