Hjúkrunarheimili opnar í dag

Hjúkrunarheimilið á Nesvöllum.
Hjúkrunarheimilið á Nesvöllum.

Hrafnista tekur í dag við rekstri á nýju hjúkrunarheimili fyrir sextíu íbúa sem Reykjanesbær hefur byggt á Nesvöllum. Vígsluathöfn hefst kl. 14 að viðstöddum heilbrigðisráðherra, fulltrúum Reykjanesbæjar og annarra sveitarfélaga á Suðurnesjum, tilvonandi íbúum, starfsfólki og ýmsum öðrum gestum. Íbúum Suðurnesja er boðið sérstaklega í opið hús síðdegis, milli kl. 16 og 18. Reykjanesbær samdi fyrr á árinu við Sjómannadagsráð, eiganda Hrafnistuheimilanna um rekstur nýja hjúkrunarheimilisins á Nesvöllum auk Hlévangs, sem er eldra hjúkrunarheimili fyrir þrjátíu íbúa, en Hrafnista tók við rekstri þess 1. mars síðastliðinn.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Reykjanesbæ og Hrafnistu.

Hjúkrunarheimilið á Nesvöllum verður rekið eftir nýrri hugmyndafræði í öldrunarþjónustu sem þróuð hefur verið undanfarin ár á Hrafnistu í Kópavogi. Hún felur í sér sameiningu á bestu kostum sjálfstæðrar búsetu og þess öryggis sem hjúkrunarheimili hafa uppá að bjóða. Þessi nýja hugmyndafræði byggir á þátttöku íbúanna sjálfra og aðstandenda þeirra í daglegu lífi á heimilinu þar sem starfsfólk og íbúar vinna saman að því að skapa hlýlegt og virkt samfélag. Hönnun húsnæðisins tekur mið af þessari hugmyndafræði, sem byggir á litlum einingum með eldhúsi, setustofu og borðstofu í miðju hússins, sem mynda umgjörð um daglegt líf á heimilinu. Persónuleg rými eru stór og björt með sér baðherbergi. Stoðeiningar eru staðsettar í samtengdri þjónustumiðstöð, svo sem endurhæfing, félagsstarf, dagvistun og mötuneyti fyrir íbúa í þjónustuíbúðum. Enda þótt húsnæði hjúkrunarheimilisins við Hlévang sé á margan hátt barns síns tíma gera áætlanir Hrafnistu ráð fyrir að sama hugmyndafræði verði innleidd á Hlévangi. Fulltrúar Hrafnistu hafa m.a. skoðað hjúkrunarheimili í Danmörku sem eru í eldra húsnæði, þar sem íbúar og starfsmenn hafa breytt fyrirkomulagi heimilishaldsins í þessu skyni með góðum árangri.

Við vígslu hjúkrunarheimilisins á Nesvöllum í dag flytja ávarp Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra, Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar og Guðmundur Hallvarðsson, stjórnarformaður Sjómannadagsráðs.