Hljómlist án landamæra í Hljómahöll

Frá tónleikunum 2016. Salka Sól og Davíð Már Guðmundsson.
Frá tónleikunum 2016. Salka Sól og Davíð Már Guðmundsson.

Fimmtudaginn 20.apríl, á sumardaginn fyrsta kl. 20:00, fara fram einstakir tónleikar í Hljómahöll í Reykjanesbæ sem bera nafnið „Hljómlist án landamæra“. Eins og nafnið gefur til kynna er um að ræða viðburð í tengslum við listahátíðina „List án landamæra“ sem notið hefur verðskuldaða athygli á landsvísu á undanförnum árum. Sérkenni og jafnframt helsti styrkleiki hátíðarinnar er að þar gefst öllum sem áhuga hafa, tækifæri á að koma listsköpun sinni á framfæri og fagna fjölbreytileika mannlífsins. 

Tónleikarnir voru haldnir í fyrsta sinn í fyrra fyrir troðfullum Stapa í frábærri stemningu ljóst að ekki verður við öðru að búast í ár. 

Tónleikarnir eru samstarfsverkefni sveitarfélaganna á Suðurnesjum, Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum og Listar án landamæra. Á tónleikunum koma fram fatlaðir og ófatlaðir tónlistarmenn frá Suðurnesjum, höfuðborgarsvæðinu, Selfossi og Akranesi.

Fram koma Salka Sól og Embla Sól Björgvinsdóttir, Salka Sól og Davíð Már Guðmundsson við undirleik Rokksveitarinnar, Vox Felix undir stjórn Arnórs Vilbergssonar og Lára Ingimundardóttir, Sönghópurinn Gimsteinar, Karitas Harpa Davíðsdóttir, sigurvegari Voice 2017, og Kristín Þóra Albertsdóttir við undirleik Tómasar Guðmundssonar og Baggabandið ásamt Evu Dögg Héðinsdóttur, Frey Karlssyni, Heiðrúnu Hermannsdóttur, Jóni Agnarssyni og Stefáni Trausta Rafnssyni. Einnig kemur fram danshópur frá Danskompaní.

 Kynnar á tónleikunum verða skemmtikraftarnir frábæru Guðjón Davíð Karlsson, betur þekktur sem Gói, og Hallgrímur Ólafsson.

Aðgangur er ókeypis og vonast aðstandendur til þess að sem flestir sjái sér fært að mæta og berja okkar frábæru listamenn augum. Verkefnið er styrkt af Uppbyggingarsjóði Suðurnesja. 

Nánari upplýsingar er að finna á facebooksíðu verkefnisins: facebook.com/Hljomlistanlandamaera