Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir hefur verið ráðin í starf skólastjóra Stapaskóla

Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir hefur verið ráðin skólastjóri Stapaskóla. Hólmfríður lauk leikskólakennaranámi með B.Ed. gráðu frá Háskólanum á Akureyri árið 2000, viðbótarnámi í grunnskólafræðum frá sama skóla árið 2002, Dipl.Ed. í námi og kennslu ungra barna frá Háskóla Íslands árið 2006 og M.Ed. í menntunarfræðum frá Háskólanum á Akureyri árið 2013.

Hólmfríður er með yfir 25 ára reynslu af kennslu, stjórnun og þróunarstarfi á öllum skólastigum, leik-, grunn- og háskólastigi.

Hólmfríður gegndi starfi skólastjóra við Sandgerðisskóla árin 2016–2022 og sem deildarstýra Kennslumiðstöðvar Háskóla Íslands frá 2022–2024. Hún var leikskólastjóri í leikskólanum Holti í Reykjanesbæ árin 2024–2025 en gegnir nú stöðu sviðsstjóra fjölskyldusviðs í sveitarfélaginu Vogum.

Hólmfríður tekur við skólastjórastarfinu af Gróu Axelsdóttur sem gegnt hefur starfi skólastjóra í Stapaskóla frá upphafi eða frá vorinu 2019 að undanskildu síðasta skólaári þegar Jón Haukur Hafsteinsson aðstoðarskólastjóri leysti hana af í námsleyfi.