Hvatningarverðlaun fræðsluráðs 2021

Elíza M. Geirsdóttir Newman og Unicef teymi Háaleitisskóla hlutu hvatningarverðlaun fræðsluráðs 202…
Elíza M. Geirsdóttir Newman og Unicef teymi Háaleitisskóla hlutu hvatningarverðlaun fræðsluráðs 2020

Fræðsluráð Reykjanesbæjar efnir árlega til hvatningarverðlauna fyrir verkefni í skólastarfi sem þykja skara fram úr og vera öðrum til eftirbreytni. Verðlaunin eru veitt til einstaka kennara, kennarahópa og starfsmanna í leikskólum, grunnskólum og tónlistarskóla Reykjanesbæjar sem standa að baki verkefnunum. Hvatningarverðlaunin verða afhent í Bíósal Duus Safnahúsa miðvikudaginn 9. júní kl. 17:00.

Allir sem vilja geta sent inn ábendingar um áhugaverð verkefni sem hafa nýst skólasamfélaginu og hafa verið unnin á yfirstandandi skólaári. Skila þarf inn tilnefningum fyrir 28. maí nk.

Eyðublað fyrir tilnefninguna má nálgast hér

Elíza M. Geirsdóttir Newman og Unicef teymi Háaleitisskóla hlutu hvatningarverðlaun fræðsluráðs 2020 fyrir verkefnið Réttindaskóli Unicef. Markmið verkefnisins var að byggja upp lýðræðislegt námsumhverfi, efla jákvæð samskipti, auka þekkingu á mannréttindum og stuðla að gagnkvæmri virðingu innan skólasamfélagsins.