Hvatningarverðlaun Fræðsluráðs

Verðlaunabörn í Víkingaskipi.
Verðlaunabörn í Víkingaskipi.

Er ekki ástæða til að hrósa?
Fræðsluráð Reykjanesbæjar kallar eftir tilnefningum til Hvatningarverðlauna fræðsluráðs.
Allir bæjarbúar geta tilnefnt einstaklinga eða skólaverkefni til verðlaunanna. Tilnefna má þróunar- og nýbreytniverkefni eða önnur vel unnin störf sem þykja til fyrirmyndar í starfsemi skóla á yfirstandandi skólaári.

Tekið er á móti tilnefningum á Fræðsluskrifstofu Reykjanesbæjar fram til 6. maí 2013.