Hvatningarverðlaun fyrir einstaka kennara

Fyrrum handhafar hvatningarverðlauna.
Fyrrum handhafar hvatningarverðlauna.

Fræðsluráð Reykjanesbæjar efnir árlega til hvatningarverðlauna fyrir einstaka kennara, kennarahópa og starfsmenn í leikskólum, grunnskólum og tónlistarskóla Reykjanesbæjar.

Verðlaunin eru veitt fyrir starf eða verkefni sem þykja skara fram úr og vera öðrum til eftirbreytni. Dómnefnd er skipuð kjörnum fulltrúum fræðsluráðs og áheyrnarfulltrúum.

Markmið hvatningarverðlaunanna er að vekja athygli á gróskumiklu starfi skólanna og stuðla að nýbreytni og þróunarstarfi. Verðlaunin eru viðurkenning fyrir vel unnin störf í þágu nemenda og foreldra og staðfesting á því að skólinn sé fyrirmynd annarra á því sviði sem um ræðir.

Verðlaunin eru veitt þeim starfsmönnum eða skóla sem þykja hafa unnið að framúrskarandi verkefnum. Viðurkenningarskjöl eru veitt fyrir athyglisverð verkefni. Einnig eru allar tilnefningar birtar á vefsíðu Reykjanesbæjar ásamt umsögn um hverja tilnefningu.

Allir sem vilja geta tilnefnt einstaklinga eða skólaverkefni til verðlaunanna. Tilnefna má þróunar- og nýbreytniverkefni um hvaðeina í skólastarfi sem unnið hefur verið að á yfirstandandi skólaári s.s. vinnu með nemendum, stefnumótun og skipulag, verkefni eins kennara eða samvinnuverkefni, verkefni í almennri kennslu eða sérgreinum, framlag annars starfsfólks skólans, forvarnarstarf eða félagsstarf.

Tekið er á móti tilnefningum á vef Reykjanesbæjar . Verðlaunaafhending tengist venjulega stofndegi Reykjanesbæjar 11. júní ár hvert.