Hvatningarverðlaun menntaráðs veitt

Menntaráð Reykjanesbæjar veitir árlega hvatningarverðlaun fyrir framúrskarandi verkefni í leik-, grunn- og tónlistarskóla bæjarins. Verðlaunin eru hugsuð sem hvatning og viðurkenning fyrir faglegt og nýstárlegt skólastarf sem getur orðið öðrum skólum og starfsmönnum til fyrirmyndar.

Hver skóli átti kost á að tilnefna eitt verkefni sem þykir hafa skarað fram úr á yfirstandandi skólaári og bárust alls 15 tilnefningar í ár, sjö frá grunnskólum og átta frá leikskólum. Úrvinnsla tilnefninga var í höndum skrifstofu menntasviðs en það eru kjörnir fulltrúar í menntaráði Reykjanesbæjar sem taka ákvörðun um hvaða verkefni hlýtur hvatningarverðlaunin.

Þrjú verkefni hlutu sérstaka viðurkenningu frá menntaráði í ár.

· „Saman fyrir betri heim“ frá leikskólanum Gimli sem þær Regína Rósa Harðardóttir og Sigurbjörg Eydís Gunnarsdóttir standa að.

· „Öflugt og metnaðarfullt frístundastarf í Ösp“ frá Njarðvíkurskóla sem Marta Caber veitir forystu.

· „Málþroski og hljóðkerfisvitund leikskólabarna Sögupokar sem kennsluaðferð“ frá leikskólanum Drekadal sem Hera Lind Bjarnadóttir heldur utan um.

Hvatningarverðlaun menntaráðs 2026 hlaut Elsa Þóra Eggertsdóttir kennari í Heiðarskóla fyrir verkefnið „FabLab samstarf: Eflum sköpunarkraft nemenda“ .

Reykjanesbær er afar stoltur af öllum þeim frábæru og fjölbreyttu verkefnum sem unnin eru í skólum bæjarins. Við erum afar þakklát fyrir framsýni, elju og metnað starfsfólks leik-, grunn- og tónlistarskólans okkar sem leggja sig fram um að skapa jákvætt og öflugt námsumhverfi fyrir börnin í bænum okkar með opnum hug og gleði í hjarta.

Saman fyrir betri heim
Leikskólinn Gimli hlaut viðurkenningu sem UNESCO-skóli haustið 2025 og er nú hluti af alþjóðlegu skólaneti stofnunarinnar. Verkefnið, undir stjórn Regínu Rósu Harðardóttur og Sigurbjargar Eydísar Gunnarsdóttur, byggir á gildum Hjallastefnunnar og heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna með sérstaka áherslu á ábyrga neyslu. Í skólastarfinu eru sjálfbærni, jafnrétti, vatnsvernd, minnkun matarsóunar og félags- og tilfinningafærni samþætt í daglegt nám. Börn, starfsfólk og foreldrar taka virkan þátt í fjölbreyttum verkefnum sem efla samfélagsábyrgð og umhverfisvitund. Gimli er fyrsti UNESCO-leikskólinn á Reykjanesi og markar viðurkenningin mikilvæg tímamót í metnaðarfullu skólastarfi.

Öflugt og metnaðarfullt frístundastarf í Ösp
Undir stjórn Mörtu Caber hefur frístundaheimilið Ösp við Njarðvíkurskóla þróast í öflugt og metnaðarfullt starf fyrir nemendur með fjölbreyttar stuðningsþarfir. Með markvissu skipulagi, fjölbreyttri dagskrá og auknu samstarfi við m.a. skátana, bókasafnið og heimilisfræði hefur starfsemin orðið öruggari, sýnilegri og innihaldsríkari fyrir nemendur. Einnig hefur verið þróað nýtt verkefni, Asparkot, sem veitir eldri nemendum aukin tækifæri til félagsstarfs og afþreyingar. Starfið einkennist af fagmennsku, nýsköpun og sterkri áherslu á þátttöku og vellíðan nemenda.

Málþroski og hljóðkerfisvitund leikskólabarna - Sögupokar sem kennsluaðferð
Í leikskólanum Drekadal er unnið markvisst þróunarverkefni undir leiðsögn Heru Lindar Bjarnadóttur þar sem sögupokar eru nýttir til að efla málþroska og hljóðkerfisvitund barna. Með leik, frásögnum og skapandi tjáningu fá börn tækifæri til að þróa orðaforða, lesskilning og

tjáningu á fjölbreyttan og lifandi hátt. Verkefnið styður við snemmtæka íhlutun og inngildandi menntun með því að mæta ólíkum þörfum barna og efla virka þátttöku þeirra í námi. Það endurspeglar metnaðarfullt þróunarstarf í nýjum leikskóla þar sem áhersla er lögð á læsi, sköpun og heildrænan þroska barna.

FabLab samstarf: Eflum sköpunarkraft nemenda
Elsa Þóra Eggertsdóttir hefur þróað öflugt samstarfsverkefni við Fab Lab Suðurnes sem eflir sköpun, nýsköpun og tæknilæsi nemenda í Heiðarskóla. Nemendur fá tækifæri til að vinna með stafræna hönnun og framleiðslu m.a. með þrívíddarprentun og laserskurði og læra þannig að þróa hugmyndir frá upphafi til fullunninnar afurðar. Verkefnið styrkir jafnframt tengsl milli grunn- og framhaldsskóla og eykur áhuga nemenda á tæknimenntun og framtíðarmöguleikum. Samstarfið hefur skilað auknu sjálfstrausti, virkni og sköpunargleði meðal nemenda.