Hver hlýtur menningarverðlaun Reykjanesbæjar?

Listakonan Sossa hlaut Súluna 2018.
Listakonan Sossa hlaut Súluna 2018.

Menningar- og atvinnuráð Reykjanesbæjar óskar eftir tilnefningum vegna menningarverðlauna Reykjanesbæjar 2020, Súlunnar. 

Tilnefningar þarf að senda í  síðasta lagi 12. október á netfangið  sulan@reykjanesbaer.is  eða í Ráðhúsið, Tjarnargötu 12.

Tilnefna skal einstakling, hóp eða fyrirtæki sem unnið hafa vel að menningarmálum í bæjarfélaginu. Rökstuðningur þarf að fylgja tilnefningu.

Upplýsingar um verðlaunahafa fyrri ára og nánari reglur má finna hér