Íbúafundir um aðalskipulag Reykjanesbæ 18. - 21. nóvember

Horft yfir Reykjanesbæ á fallegum sumardegi. Ljósmynd OZZO
Horft yfir Reykjanesbæ á fallegum sumardegi. Ljósmynd OZZO

Dagana 18. -21. nóvember 2019 er efnt til íbúafunda um endurskoðun Aðalskipulags Reykjanesbæjar. Markmið fundanna er að kynna íbúum þær breytingar sem stefnt er að og leita álits og þiggja ábendingar íbúa.

Fundarstaður og dagsetningar eru sem hér segir

  • Mánudagur 18. nóvember 2019, kl 19:30-21 - fundarstaður Andrews Theater Ásbrú. Sérstaklega fjallað um rammaskipulag
  • Þriðjudagur 19. nóvember 2019, kl 19:30-21 - fundarstaður Akurskóla Njarðvík. Sérstaklega fjallað um Dalshverfi III og Fitjar
  • Miðvikudagur 20. nóvember 2019, kl 19:30-21 - fundarstaður Heiðarskóla Keflavík. Sérstaklega fjallað um Hlíðarhverfi og Vatnsnes
  • Fimmtudagur 21. nóvember 2019 - kl 19:30-21 - fundarstaður Gamli barnaskólinn Höfnum. Sérstaklega fjallað um ferðaþjónustu á Reykjanesi