Íbúafundur um atvinnumál á Suðurnesjum

Mynd af fólki
Mynd af fólki

Hvað get ég gert?  

Sveitarfélögin á Suðurnesjum ásamt Vinnumálastofnun, Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum /Atvinnuþróunarfélaginu Heklunni, Samtökum atvinnurekenda á Reykjanesi og stéttarfélögunum af svæðinu boða til íbúafundar í Stapa fimmtudaginn 17. september kl. 17.00.

Íbúar allra sveitarfélaga á Suðurnesjum eru boðnir velkomnir á fundinn í Stapa en fundinum verður einnig streymt á Facebook-síðu Víkurfrétta og sveitarfélaganna. 

 Markmiðið með fundinum er að kynna fyrir íbúum svæðisins þær aðgerðir sem eru í gangi vegna þess atvinnuleysis sem nú er uppi en einnig að hvetja íbúa til þess að koma hugmyndum sínum á framfæri. Íbúum mun gefast kostur á að senda inn tillögur og spurningar. Fyrirkomulagið á því verður útskýrt í upphafi fundar.  

Frummælendur:

  • Hildur, Jakóbína Gísladóttir, forstöðumaður Vinnumálastofnunar á Suðurnesjum.
  • Berglind Kristinsdóttir, framkvæmdarstjóri Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum.
  • Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.
  • Guðjón Skúlason, formaður Samtaka atvinnurekenda á Reykjanesi.
  • Dr. Árelía Eydís Guðmundsdóttir.

Fundarstjóri; Róbert Ragnarsson