Íbúar Reykjanesbæjar orðnir 18.000 talsins

Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri með átjánþúsundasta íbúa Reykjanesbæjar, dóttur Sveins Baldvins…
Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri með átjánþúsundasta íbúa Reykjanesbæjar, dóttur Sveins Baldvinssonar og Örnu Vignisdóttur, foreldrum hennar og systur, Sóleyju Marín. Ljósmynd: Víkurfréttir

Íbúatala Reykjanesbæjar fór upp í 18.000  mánudaginn 26. mars þegar spræk stúlka kom í heiminn kl. 13:02 á ljósmæðravakt HSS. Af því tilefni færði Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri Reykjanesbæjar fjölskyldunni blómvönd fyrir hönd bæjarins.

Stúlkan vóg 3.320 gr. og var 51 cm. löng við fæðingu. Hún er annað barn foreldra sinna, þeirra Örnu Vignisdóttur og Sveins Baldvinssonar en fyrir eiga þau dótturina Sóley Marín Sveinsdóttur 7 ára. Víkurfréttir greindu frá í gær.