Íbúar við Heiðarenda taka upp nágrannavörslu

Nágrannavörslu hefur verið komið á við Heiðarenda í Reykjanesbæ

Íbúarnir hafa bundist samtökum um að gæta að eignum hvers annars og fylgjast með híbýlum þegar nágrannar eru að heiman. Nágrannavarsla er nú við tíu götur í Reykjanesbæ.

Samstarfsverkefni Reykjanesbæjar og lögreglunnar

Reykjanesbær tók formlega upp Nágrannavörslu árið 2008 en verkefnið er samstarfsverkefni Umhverfissviðs Reykjanesbæjar og forvarnardeildar lögreglunnar á Suðurnesjum. Guðlaugur H Sigurjónsson framkvæmdarstjóri umhverfissviðs afhenti íbúum við Heiðarenda upplýsingar um nágrannavörslu og límmiða til að setja í rúður og á hurðir. Merki verkefnisins var komið fyrir á staurum við Heiðarenda.

Þú getur líka verið með

Íbúar og nágrannar, í Reykjanesbæ sem vilja taka upp formlega nágrannavörslu eru hvattir til að hafa samband við Reykjanesbæ í síma 421 6700 eða á usk@reykjanesbaer.is. Nauðsynlegt er að fá upplýsingar um ferli og kynningu áður en gata er útnefnd með nágrannavörslu.