- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar hefur samþykkt að lækka verð á byggingarrétti, sem skilgreindur hefur verið í gjaldskrá sveitarfélagsins sem innviðagjald, niður í 0 krónur á fermetra. Breytingin nær til íbúðarbyggðar, iðnaðarbyggðar, verslunar og þjónustu og athafnasvæða.
Með samþykktinni er gjaldskrá samkvæmt 3. gr. samþykktar um innviðagjald breytt þannig að gjaldið verður 0 kr./m² í öllum flokkum. Frá því að gjaldið var tekið upp árið 2024 hefur það numið 35.000 kr./m² vegna íbúðarhúsnæðis og 6.000 kr./m² vegna iðnaðarbyggðar, verslunar og þjónustu og athafnasvæða.
Breytingin getur því haft veruleg áhrif á kostnað við uppbyggingu. Sem dæmi hefur innviðagjald vegna 120 fermetra íbúðarhúsnæðis numið 4.200.000 krónum. Sá kostnaður fellur nú niður.
Innviðagjöld Reykjanesbæjar hafa hingað til verið tekin af svæðum sem eru deiliskipulögð innan Reykjanesbæjar. Með breytingunni fellur sú gjaldheimta niður.
Vert er að taka fram að til dæmis Kadeco, sem er í eigu ríkisins, innheimtir áfram byggingarréttargjöld á sínu landi. Meirihluti bæjarstjórnar hvetur ríkið og aðra landeigendur í sveitarfélaginu til að fylgja fordæmi Reykjanesbæjar og draga úr álögum á uppbyggingu.
Markmið breytingarinnar er að lækka álögur á uppbyggingu, fækka aðgangshindrunum og skapa sterkari hvata til fjárfestingar og framkvæmda. Jafnframt er horft til þess að bæta skilyrði fjölskyldna og einstaklinga til að byggja og eignast eigið húsnæði.
Betri skilyrði fyrir húsnæðis- og atvinnuuppbyggingu
Lækkunin er meðal annars hugsuð til þess að auðvelda minni uppbyggingaraðilum, iðnaðarmönnum og fjölskyldum að ráðast í eigin verkefni.
Ákvörðunin nær einnig til atvinnuuppbyggingar. Innviðagjöld vegna iðnaðarbyggðar, verslunar og þjónustu og athafnasvæða lækka úr 6.000 krónum á fermetra í 0 krónur. Með því er stefnt að því að styrkja samkeppnisstöðu Reykjanesbæjar og skapa fyrirtækjum betri skilyrði til fjárfestinga, uppbyggingar og fjölgunar starfa.
Ryðjum hindrunum úr vegi
Reykjanesbær ætlar að skapa góð skilyrði fyrir uppbyggingu fremur en að líta á hana sem sérstakan tekjustofn. Ný uppbygging skapar verðmæti til lengri tíma, fjölgar störfum og styrkir framtíðartekjur sveitarfélagsins.
Auknar álögur á húsnæðisuppbyggingu hafa á undanförnum árum orðið sífellt stærri kostnaðarliður við nýbyggingar. Reykjanesbær vill með breytingunni fara í gagnstæða átt.
Ekki var gert ráð fyrir tekjum af innviðagjöldum á yfirstandandi ári og hefur breytingin því ekki áhrif á fyrirliggjandi rekstraráætlun sveitarfélagsins.
Afnám gjaldanna er hluti af stefnu meirihlutans um að gera Reykjanesbæ að eftirsóknarverðum stað til uppbyggingar. Áhersla er lögð á nægt framboð lóða, skýrt skipulag, skilvirka stjórnsýslu og hóflegar álögur fyrir einstaklinga og fyrirtæki sem vilja byggja upp í Reykjanesbæ.