Ipadvæðing jafnar félagslega stöðu og bætir hag heimilanna

Nemendur prófa nýju spjaldtölvurnar.
Nemendur prófa nýju spjaldtölvurnar.

Reykjanesbær er að iPadvæða kennslu á öllu unglingastigi í skólum bæjarins. Það er gert í þremur þrepum. Einn árgangur í hverjum skóla hefur þegar fengið iPad til notkunar í námi sínu. Að sögn Haraldar Axels Einarssonar aðstoðarskólastjóra í Heiðarskóla minnkar kostnaður heimilanna mikið við þetta. Þannig fer kostnaður heimilanna á hvern nemanda við upphaf annar úr 8-10 þúsund krónum niður í núll. Nemendur gætu reyndar hugsanlega þurft að endurnýja gúmmí framan á pennum sem notaðir eru þegar skrifað er á Ipadinn.

Gylfi Jón Gylfason fræðslustjóri Reykjanesbæjar segir að þar sem allir fái afhenta iPadana til persónulegrar notkunar, jafni það félagslega stöðu nemenda. Með þessu hafa allir nemendur jöfn tækifæri til að kynna sér og nota hina nýju tækni, ekki bara þau börn sem koma frá efnameiri heimilunum. Það nýti mannauðinn betur og auki hamingju barnanna.

Gylfi Jón segir mikilvægt að nemendur tileinki sér strax þá möguleika sem felast í nýrri tækni, það sé hlutverk grunnskólans að laða fram það besta sem býr í hverjum og einum og búa undir fullorðinsárin. Það geti grunnskólinn ekki nema að starf hans taki mið af því samfélagi sem skólinn starfi í. Nauðsynlegt sé að skólamenn fylgist vel með tækniframförum og setji þær jafnóðum inn í skólana sem eðlilegan hluta skólastarfs.