Tilnefningar: Íslensku menntaverðlaunin 2020

Anna Sofia Wahlström
Anna Sofia Wahlström

Mennta- og menningarmálaráðherra hefur tilkynnt tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna 2020. Markmið verðlaunanna er að auka veg menntaumbótastarfs og vekja athygli samfélagsins á metnaðarfullu og vönduðu skóla- og frístundastarfi með börnum og unglingum.

Sjá tilnefningar > 

Anna Sofia Wahlström, kennari við leikskólann Holt í Reykjanesbæ var tilnefnd fyrir framúrskarandi kennslu og þróunarstarf í tengslum við innlend og alþjóðleg verkefni sem beinast að því að efla skapandi leikskólastarf með áherslu á læsi og lýðræði. Innilegar hamingjuóskir elsku Anna Sofia.