Jólaboð frú Ásu. Jólatrésskemmtun í Bryggjuhúsinu á sunnudag

Jólasveinn af gamla skólanum mun líta við á jólaballinu.
Jólasveinn af gamla skólanum mun líta við á jólaballinu.

Frú Ása Olavsen, kaupmannsfrú Duusverslunar, tekur vel á móti börnum og fjölskyldum þeirra  á jólatrésskemmtun í Bryggjuhúsinu líkt og hún gerði fyrir um 100 árum síðan.

Skemmtanir þessar, sem haldnar voru um 20 ára skeið, þóttu einn af hápunktum félagslífsins hér í bæ. Dansað verður í kringum jólatréð með skemmtilegum jólasveini af gamla skólanum og jólasöngvar sungnir. Við hvetjum fjölskyldur til að koma saman og njóta þess að líta til baka á gamlar hefðir og upplifa einfaldleika jólanna og hinn sanna jólaanda.

Jólatrésskemmtunin fer fram sunnudaginn 9. desember frá kl. 14-15. 

Allir eru hjartanlega velkomnir á meðan húsrúm leyfir og aðgangur er ókeypis.