Jólahús og jólagluggi Reykjanesbæjar 2013

Jólahús.
Jólahús.

Ljósabærinn

Reykjanesbær hefur staðið fyrir samkeppni um Ljósahús / Jólahús bæjarins frá árinu 2001 og er þetta því í þrettánda sinn sem veittar eru viðurkenningar fyrir bestu ljósaskreytingarnar í bænum. Reykjanesbær hefur lengi verið þekktur fyrir mikla ljósadýrð og margir gera sér sérstaka ferð á aðventunni til bæjarins til að skoða ljósadýrðina. Viðurkenningar í samkeppninni um Jólahús Reykjanesbæjar 2013 voru afhentar mánudaginn 16. des. kl. 18.00.

Íbúar kusu jólahúsið

Í ár var hafður sami háttur á valinu eins og í fyrra þ.e. að hin skipaða „jólanefnd“ tilnefndi tíu hús sem bæjarbúar sjálfir fengu svo að velja úr í rafrænni kosningu á vef Víkurfrétta. Tæplega 1.000 manns tóku þátt í valinu og er það miklu fleira fólk en sendi venjulega inn tilnefningar. Þessi aðferð virðist því ná betur til íbúanna og ákveðið er að halda þessu verklagi áfram á næsta ári. Í valnefndinni sátu fulltrúar frá menningarráði, umhverfis- og skipulagsráði  ásamt fulltrúa Víkurfrétta en það voru auðvitað íbúarnir sjálfir sem kusu sér Ljósahús.

Úrslitin urðu eftirfarandi:
1.Túngata 14
2. Týsvellir 1
3. Heiðarból 19

Verðlaunahafar fengu viðurkenningarskjal frá Reykjanesbæ og frá Hs Orku/Veitu  fengust ávísanir upp í orkureikninginn í desember að upphæð kr. 30.000 fyrir fyrsta sætið, 20.000 fyrir annað sætið og 15.000 fyrir þriðja sætið. Enn er hægt að sjá hvað hús voru tilnefnd og myndir af þeim öllum á vef Víkurfrétta vf.is.

Jólaglugginn

Við sama tækifæri voru veittar þrjár viðurkenningar fyrir fallegustu jólagluggana í verslunum og fyrirtækjum bæjarins og eftirfarandi fyrirtæki hlutu viðurkenningar fyrir glæsilegar skreytingar.

1. Draumaland
2. Kóda
3. Gallerý 8