Jólakveðja bæjarstjóra

Gleðileg jól!
Gleðileg jól!

Ágætu íbúar og samstarfsaðilar

Í framtíðarsýn Reykjanesbæjar kemur fram sú bjargfasta trú að það sé sameiginlegt hlutverk okkar sem hér búum að stuðla að hamingju og heilbrigði einstaklinganna, að þeir nái að þroska hæfileika sína, hafa sterka sjálfsmynd og láti drauma sína rætast. Ekki síst viljum við skapa börnum okkar bestu tækifæri til að rækta hamingju og heilbrigði, afla sér góðrar menntunar og framtíðarstarfa.

Nú sem fyrr mun Reykjanesbær standa vörð um grunnþjónustu við bæjarbúa og leggja áfram áherslu á verkefni sem geta stuðlað að heilbrigði þeirra og hamingju. Bæjarbúar búa að uppbyggingu síðustu ára í Reykjanesbæ meðal annars í leik- og grunnskólum og er aðstaða og aðbúnaður skólanna eins og best verður á kosið. Reykjanesbær mun áfram leitast við að halda góðu þjónustustigi þrátt fyrir að hert hafi að og allt verður gert til þess að fyrirhugaður niðurskurður bitni ekki á þjónustu við börn og aldraða. Það er mikilvægt að missa ekki sjónar á því sem jákvætt er, sérstaklega þegar herðir að.

Skynsöm bjartsýni er mikilvæg því á Reykjanesi eru sterk tækifæri í atvinnulífi sem geta einnig nýst allri þjóðinni til framdráttar. Atvinnuleysi hefur verið hátt á Suðurnesjum og mældist 12,2% í október. Mikilvægt er að halda virkni sinni þegar á móti blæs á vinnumarkaði og mikilvægt að nota tímann til að byggja sig upp og vera tilbúinn að mæta nýjum tækifærum þegar þau koma. Vonir standa til þess að stór atvinnuverkefni s.s. álver, kísilver, gagnaver, einkasjúkrahús og flugtengd verkefni komist af stað á nýju ári og spár um ferðaþjónustu eru jákvæðar.

Jólin eru tími þakkargjörðar. Við minnumst fæðingar frelsarans og þeirrar lífssýnar sem hann vísar til. Við hlúum að hvort öðru, styðjum og styrkjum hvort annað til góðra verka.

Ég óska ykkur gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári!

Árni Sigfússon bæjarstjóri.