Komdu út að Plokka

Galvaskir plokkarar í Reykjanesbæ
Galvaskir plokkarar í Reykjanesbæ

Stóri Plokkdagurinn verður haldin 24. apríl og er sannarlega orðin einn af vorboðunum í Reykjanesbæ.

Að plokka fegrar bæjarfélagið okkar og náttúru en víða er mikið af plasti og öðru rusli eftir mjög stormasaman vetur. Núna er rétta tækifærið til að sópa og hreinsa sitt nærumhverfi og gera fallega bæinn okkar snyrtilegri fyrir sumarið. 

Allir geta plokkað, hvort sem þeir fara um einir eða í göngu með vinum eða fjölskyldu.

Munum bara að þvo hendur þegar heim er komið og sinna persónulegum sóttvörnum samhliða plokkinu. Við viljum hvetja alla íbúa til þess að taka þátt, hvort sem það verða 10 plokk eða heill ruslapoki, allt skiptir máli. Munum að þetta er bærinn okkar og ábyrgðin okkar. Nánari upplýsingar er að finna á www.plokk.is

Við erum með fimm söfnunarstaði (sjá kort hér fyrir neðan). 

  • Við vatnstankinn ofan við Eyjabyggð.
  • Við hundagerðið í Njarðvíkurskógum.
  • Við fuglastoppið á Fitjum.
  • Við vatnstankinn hjá húsi 1217 - Ásbrú.
  • Við hólinn í Innri Njarðvík.