Konur í meirihluta í bæjarstjórn

Sá fáheyrði atburður átti sér stað á síðasta bæjarstjórnarfundi, 17. mars, að konur skipuðu meirihluta stjórnar. Slíkt hendir þegar varamenn fyrir karlkyns aðalmenn koma úr röðum kvenna og leysa þarf fleiri en einn aðalmann af. Böðvar Jónsson D lista sá ástæðu til að fanga þetta augnablik og tók mynd af hópnum.

Þessir föngulegu bæjar- og varabæjarfulltrúar eru Elín Rós Bjarnadóttir Á, Magnea Guðmundsdóttir D, Ingigerður Sæmundsdóttir D, Guðný Birna Guðmundsdóttir S, Anna Lóa Ólafsdóttir Y og Halldóra Hreinsdóttir B.