Kynning á deiliskipulagi í Helguvík

 Umhverfis- og skipulagssvið heldur opinn íbúafund í Hljómahöllinni miðvikudaginn 29. apríl milli 17:00 og 19:00. Á fundinum verður farið yfir það deiliskipulag sem er í auglýsingu núna, auk fleiri erinda.
 
DAGSKRÁ:
- Kynning á deiliskipulagi í Helguvík.
- Vöktun á mengandi iðnaði.
- Loftgæði innan og utan þynningarsvæðis.
- Mengandi starfsemi - Hlutverk umhverfisstofnunar.
- Umræður og fyrirspurnir.
 
Umhverfis- og skipulagssvið hvetur íbúa til að fjölmenna.